Andlitslyfting fyrir símann
Þjónustumiðstöð Hátækni er með gríðarlegt úrval af fram- og bakhliðum á flestar gerðir Nokia-síma sem og takkamottur.
Oftar en ekki verða símarnir nokkuð þreyttir, útlitslega séð, með tíð og tíma. Hægt er að gera símann þinn svo gott sem nýjan með því að koma með hann í andlitslyftingu hjá okkur. Einnig er í mörgum tilfellum hægt að velja nýjan lit á símann.
Hér má sjá dæmi um síma sem hafa verið vinsælir í gegnum tíðina en eru farnir að láta á sjá. Einföld andlitslyfting á símanum þínum gerir hann eins og nýjan eins og sjá má á þessum myndum.
Ef þú hefur áhuga á að gera gamla símann þinn sem nýjan, smelltu þá hér og leitaðu eftir tilboði.

