Hátćkni í 25 ár Heildsala
Ţjónusta
Hústćkni Heilbrigđissviđ Verslun
 
Er tćkiđ ţitt bilađ?

Þjónustumiðstöð Hátækni sérhæfir sig í viðgerðum og þjónustu á þeim vörum sem Hátækni flytur inn til landsins og selur. Þjónustumiðstöð Hátækni samanstendur af þjónustuverkstæði sem m.a. sér um viðgerðir á Nokia-farsímum og bakvinnslu sem sér um umsýslu og stýringu á þeim vörum sem gert er við erlendis eða skipt út.

Frá því að verkstæðið tók til starfa árið 1997 hefur safnast gríðarleg reynsla hjá starfsmönnum þjónustumiðstöðvarinnar. Oftar en ekki má með lítilli fyrirhöfn greina bilanaeinkenni vöru og segja til um hvað er hægt að gera til að leysa úr vandanum.

Hér á þessari síðu má finna nokkur handhæg ráð og ráðleggingar sem hægt er að nýta sér til þess að bilanagreina tæki sem hugsanlega gæti verið bilað. Þó skal það tekið fram að þær upplýsingar sem koma fram á þessari síðu eru á engan hátt tæmandi og oftar en ekki þarf að koma með tækið til viðgerðar til þess að fá úr því skorið hvað sé að.

Hægt er að nálgast verðskrá þjónustusviðs fyrir árið 2010 með því að smella hér.

Símar

-Af hverju frýs síminn minn? | Farsímar í dag eru orðnir að mjög flóknum tækjum þegar það kemur að þeim vélbúnaði sem knýr þá áfram. Stundum getur það gerst að síminn þinn frýs og ekki er hægt að ýta á neina takka. Í langflestum tilvikum er nóg að taka rafhlöðuna af símanum og setja hann aftur í og ræsa símann aftur upp. Ef síminn er ítrekað að frjósa má vera að það þurfi að uppfæra stýrikerfið í símanum. Í mörgum tilvikum er hægt að uppfæra símann með forriti sem nefnist Nokia Ovi Suite og hægt er að nálgast það með því að smella hér. Ef ekki er hægt að uppfæra símann þá verður hann að koma inn á verkstæðið okkar.

 

Bluetooth-búnaður

-Af hverju næ ég ekki að tengja Bluetooth-búnaðinn við símann minn? | Þegar maður tekur Bluetooth-búnað í notkun þá þarf í öllum tilfellum að byrja á því að para búnaðinn saman við símann þinn. Til þess að gera það þá þarf að gera eftirfarandi:

1. Setja Bluetooth-búnaðinn í pörunarham (nánari útskýringu er hægt að finna í leiðarvísinum sem fylgir með Bluetooth-búnaðinum þínum)

2. Fara inn í Bluetooth-valmyndina í símanum þínum, kveikja á Bluetooth og leita eftir nýju tæki

3. Velja tækið úr listanum og slá inn aðgangsorð (oftast er það 0000, 1234 eða 1111)

-Ég hef verið að nota Bluetooth-búnað en núna nær hann ekki sambandi við símann. | Í sumum tilfellum getur pörun á milli Bluetooth-búnaðar og farsíma dottið niður, þá getur verið að það þurfi að endursetja Bluetooth-búnaðinn. Nákvæmar leiðbeiningar um það hvernig maður endursetur Bluetooth-búnað er hægt að finna í leiðarvísinum sem fylgdi með búnaðinum.

 

Sjónvarp

Sjónvörp í dag eru orðin mjög fullkomin og geta í mörgum tilvikum gert margt annað en að sýna t.d. mynd í gegnum sjónvarpsmerki. Sum sjónvörp geta t.d. tekið upp sjónvarpsefni á innbyggðan harðan disk, spilað myndskeið af USB-minnislyklum, farið á Netið o.s.frv. Eftir því sem virkni sjónvarpstækja eykst þá geta komið upp fleiri vandamál við notkun tækisins. Hér fyrir neðan eru nokkur handhæg ráð um það hvernig þú getur komið sjónvarpstækinu þínu í notkun ef upp koma vandamál:

Ekkert hljóð eða mynd þegar reynt er að spila DVD eða annað:

                -Athugaðu hvort sjónvarpið sé stillt á rétt input.

                -Næst mynd úr einhverju öðru tæki sem tengt er við sjónvarpið ?

Ekkert hljóð:

                -Eru tengingarnar réttar og allt í sambandi ?

                -Ef um scart tengi er að ræða, situr scart tengið skakkt í eða ekki nægilega vel fest ?

Enginn mynd:

                -Ef um scart tengi er að ræða, situr scart tengið skakkt í eða ekki nægilega vel fest ?

Engar stöðvar koma inn:

                -Er sjónvarpið stillt á Ísland, Danmörk eða Þýskaland ? Ekki Bretland.

                -Er loftnetið í sambandi ?

                -Ef um afruglara er að ræða, prufaðu að endurræsa hann.

                -Ef um CI kort er að ræða,  snýr kortið rétt ?

Til að athuga hvort sjónvarpið lesi kortið:

-Ýtu á Menu á settings á CI settings á subscription status

Prófaðu að setja stöðvarnar inn með Manual Tuning

                    -Staðfestu rásirnar (s15, s16...) sem fá signal.

Sjónvarpið fer ekki í gang:

            -Er tækið í sambandi við rafmagn ?

-Prufaðu að taka úr og setja í samband aftur.

                  -Athugaðu hvort rafmagns innstungan sé í lagi.

                  -Ef það er ekkert ljós á tækinu þá þarf að kveikja á rofanum.

Fjarstýringin virkar ekki:

                  -Eru rafhlöðurnar í lagi ?

                  -Er eitthvað fyrir eða að blokka IR augað á tækinu ?

Mynd er svarthvít:

                  -Er sjónvarpið stillt á S-Video ?

Myndin passar ekki á skjáinn:

                   -Ýttu á aspect takkann á fjarstýringunni til að stilla sjónvarpið í 16/9 eða widescreen.

                   -Ef afruglari eða spilari er í lagi, athugaðu hvort hann sé stilltur á 16/9 eða widescreen í setup.

Engin mynd á PC:

                   -Er kveikt á Monitor 2 á tölvunni ? (control panel - display settings)

 

Hátalarar

Hér fyrir neðan eru nokkur handhæg ráð fyrir þá sem lenda í vandræðum með hátalarana sína:

Ekkert hljóð eða mynd:

                    -Ertu með magnarann stilltan á rétt input ?

                    -Ef um HDMI er að ræða, er DVD/Blueray spilarinn stilltur þannig að hljóðið fer út úr HDMI ?

                    -Prufaðu að taka úr sambandi við rafmagn og stinga svo í aftur.

Myndin flökktir þegar tengt í HDMI eða virkar bara alls ekki:

                     -Prufaðu að stilla spilarann á 1080i og magnarann á upscale í 1080p

Hljóð úr 1 eða fleiri hátölurum virkar ekki:

   -Athugaðu með A-B takkann á magnaranum.

   -Athugaðu hvort tengingar á magnaranum og hátölurunum séu í lagi.

   -Prufaðu að víxla tengingunum.         

Ekkert hljóð úr bassaboxinu:

                      -Er boxið í sambandi við rafmagn og kveikt á því ?

                      -Er hljóðkapalinn tengdur í rétt tengi á magnaranum og bassaboxinu (Subwoofer Output)?