Þarf að laga símann ?
Farsímar í dag eru flókin tæki sem innihalda marga eiginleika. Stundum kemur fyrir að einhver aðgerð í símanum hættir að virka eða vandamál koma upp með einhverja virkni. Í sumum tilfellum dugir þá að slökkva á símanum, taka rafhlöðuna úr og setja í aftur og síminn fer að virka eðlilega aftur.
Margir kvillar sem koma upp í farsímum í dag má rekja til hugbúnaðar vandamála. Það er ekkert óeðlilegt með farsíma í dag að þeir eiga til að frjósa, jafnvel 1 sinni í viku. Til þess að tryggja bestu mögulegu virkni símans er eindregið mælt með að síminn sé uppfærður með nýjustu hugbúnaðar uppfærslu sem til er fyrir hann. Hægt er að uppfæra símtækið með aðstoð Nokia PcSuite/Ovi-Suite, sem er ókeypis hugbúnaður og hægt er að nálgast á netinu. Þess ber að gæta að taka ávallt afrit af gögnum áður en síminn er uppfærður.
Oft getur notandinn sjálfur forgreint hvort um bilun er að ræða með nokkrum einföldum aðgerðum.
- Kveikir síminn ekki á sér ?
-Prufaðu að ræsa símann með annari rafhlöðu ef slík er til staðar - Hleður síminn ekki ?
-Prufaðu að hlaða símann með öðru hleðslutæki
-Prufaðu að hlaða símann með annari rafhlöðu - Les síminn ekki simkortið ?
-Prufaðu símann með öðru simkorti - Les síminn ekki minniskortið ?
-Prufaðu að setja annað minniskort í símann
-Prufaðu minniskortið í öðru símtæki
Rafhlöðuending símtækja er mjög misjöfn. Uppgefin rafhlöðuending framleiðanda miðast alltaf við bestu mögulegu skilyrði, skilyrði sem í raun nást sjaldan eða aldrei. Margir aðrir þættir en símtölin sjálf geta haft veruleg áhrif á rafhlöðu endinguna. Sem dæmi má nefna að á símtækjum með snertiskjá, þar sem skjárinn er töluvert stærri en á hefðbundnum farsíma, getur skjábirtan haft mikil áhrif á rafhlöðu endinguna. Ef notandinn er mikið að fikta í símanum þannig að skjábirtan er viðloðandi getur notandinn gert ráð fyrir mun skemri endingu rafhlöðunnar. Einnig hafa aðrir hlutir eins og WIFI, Bluetooth og ýmis forrit sem tengjast netinu mikil áhrif á rafhlöðu endingu.
